|
Lesa fyrri tölublöð Avatarstunda
• Blað 2: Útbreiðsla Avatar • Blað 3: Hugljómun • Blað 4: Úrvinnslurnar • Blað 5: Hugarró • Blað 6: Gagnast það mér? • Blað 7: Vingast við eigin huga • Blað 8: Sannfærandi afsakanir • Blað 9: Viðráðanlegar aðstæður • Blað 10: Að móta veruleikann • Blað 11: Hvað heldur þú. . .? • Blað 12: Skilaboð frá . . . • Blað 13: Vantar þig skó?

Óvenjuleg augnablik
Þetta fór fram úr væntingum mínum. Mögnuð upplifun og góð aðferð til að vera uppspretta. Ég sé framtíðina nú í öðru ljósi. Ég vildi vera sjálfsöruggari. Ég vildi finna og upplifa mátt innsæis. Ég er hér. Mig langar að nota þessa reynslu og mátt til frekari hvatningar fyrir lögregluna í Hollandi og til að nota innsæi á faglegan hátt í starfinu. Lögreglumenn þurfa of oft að taka ákvarðanir á sekúndubroti. Og ég trúi því að það að vita hvað innsæið getur gert og hvernig það getur hjálpað í starfi væri stórt skref fram á við.
–Bestu kveðjur.
Ég fékk það á tilfinninguna að virkilega skilja verk Jesú í Biblíunni. Til dæmis: „Ég er hið eina sem er.” Það er svo mikill munur að skynja eitthvað en ekki bara skilja það í huganum. Ég finn hvað sumt af því sem ég skapa er tilgangslaust og grimmt. Ég finn kærleikann og hve yndisleg ég er.
–V.C.
Fyrst langar mig að segja: Þakka þér kærlega fyrir. Ég hef aldrei verið svona hamingjusöm, svo viss og meðvituð um sjálfa mig. Tómstundagamanið mitt er svifflug og ég get fullvissað þig um að það er stórkostleg tilfinning að fara ein í loftið í fyrsta skipti. En á þessari stundu líður mér eins og ég sé að fljúga aftur í fyrsta skipti. Örugg um sjálfa mig og möguleika mína. Svo ánægð með að hafa náð markmiðinu sem ég setti mér í þessari viku. Ég hef komist langt að mörgu leyti svo það er stórkostlegt að komast þangað sem ég er nú og að finna og vita að ég get dvalið hér eins lengi og ég vil.
–N.B.
Ég tók Avatarnámskeiðið fyrir þremur árum og meistaranámið og svo þrjár kennsluþjálfanir. Í upphafi var ég illa áttuð og hafði enga fasta stefnu. Það munaði minnstu að ég gæfist upp á læknanáminu mínu. Þremur árum síðar lauk ég læknanáminu með miklum ágætum. Ég rannsakaði sjálfs-skilvirkni og félagslegan stuðning. Í fyrsta kaflanum skrifaði ég þakkarbréf: Þakkir til Harry Palmer og allra vina minna á Avatarleiðinni sem minntu mig á það að ég skapa líf mitt með viðhorfum mínum.
–O.D.
Kæri Harry og Avatarfjölskylda. Þið eruð sannarlega fjölskyldan mín og ég er þakklátari en orð fá lýst. Með ykkar hjálp á síðustu tíu dögum hef ég uppgötvað lag eftir lag af duldum viðhorfum, líkt og lagskiptan lauk og fundið hugrekkið og Avatarverkfærin.
Og hina yndislegu meistara og samnemendur sem hafa stutt mig í þessu. Fimmtíu ár, plús, af hnútum hafa verið leystir á tíu dögum!!
Ég hef lært að eigna mér og fagna árangri mínum sem uppsprettuvera og gangast við ábyrgð minni á öllu lífi mínu. Eins og það eitt dygði ekki . . . að upplifa á endanum ótakmarkaða vitund! Að finna leið meðvitund-arinnar til að skapa og afmá sköpun! Og að hafa verkfærin til að gera þetta á hverjum degi. Ómetanleg gjöf! Ég finn djúpa hollustu við þetta starf gagnvart öðrum og mun verða á meistaranámskeiðinu í september. Takk fyrir! Ég geri það!
–M.S.
 Er tíminn ekki kominn?
Ef þú vilt að Avatarmeistari hafi samband við þig skaltu smella hér
Með Avatar vinna allir. Sérhver manneskja sem verður Avatar breytir sameiginlegri meðvitund okkar í átt að auknu umburðarlyndi og skilningi. Þegar þú hjálpar þér með Avatar hjálpar þú einnig öllum öðrum.
– Harry Palmer
|
|
Á fyrsta áratug Avatar, árunum 1986 til 1996, voru haldin sex Vitkanámskeið í Orlando í Flórída. Þau voru djúpstæð upplifun sem breytti lífi þátttakenda ásamt því að hafa, á einhvern undraverðan hátt, áhrif á aðstæður utan veggja hótelsins þar sem námskeiðin voru haldin.
Einn þáttur í þessari Vitkaupplifun voru fyrirlestrar sem fluttir voru á morgnana. Eftirfarandi er úrdráttur úr fyrirlestri um mátt, sem ég hélt 27. janúar 1995. Að varðveita sköpunarmáttinn eftir Harry Palmer

Allar verur hafa eitthvern sköpunarmátt er þær hefja lífið. Flest sóum við þessum mætti, vegna vitundarskorts, fáfræði eða þaðan af verra, í tilgangslausa samkeppni eða í að byggja sandkastala sem þurrkast út í næsta aðfalli. Hugir okkar eru týndir í þokumóðu innrættra viðhorfa og þrálátra sjálfskennda sem halda okkur föstum í baráttu og ringulreið. Byssukúlur og örlög taka einnig sinn toll.
Að skapa líf sitt af ásettu ráði útheimtir hugrekki, vísdóm og metnað. Kjarni hugrekkis er eiginleiki til að skynja það sem er, eins og það er, á meðan maður er meðvitaður og til staðar í augnablikinu. Við hlaupum ekki í burtu og felum okkur. Kjarni viskunnar er sá eiginleiki að sjá fyrir langtíma afleiðingar þess sem gert er og þau viðbrögð sem það veldur. Kjarni metnaðar er þróttmikil og einbeitt viðleitni. Styrkið þessa eiginleika, haldið þeim í jafnvægi og þið munuð endurheimta mátt ykkar til að skapa og móta veruleikann.
Máttur hefur, fyrir mistök, verið tengdur stríði og ofbeldi en staðreyndin er að stríð og ofbeldi byggja á ójafnvægi og misnotkun máttar. Metnaður einn og sér leiðir ávallt til sjálfs-eyðingar. Ef þið efist skuluð þið skoða hvert þessi heimur stefnir. Viska án hugrekkis gengur úr sér og hugrekki án visku hefur ekki heildar-myndina. Þessir þættir þurfa að vera í jafnvægi. Þegar þeir eru það eflir mátturinn framþróun ykkar frekar en sjálfseyðinguna.
Já, við vitum öll að mátturinn getur verið hættulegur. Hann getur verið spilltur og afvegaleiddur. Þannig að áður en þið leysið landfestar Vitkaljómans langar mig að veita ykkur nokkur ráð um hvernig þið getið stjórnað og varðveitt þann mátt sem þið eruð að endurheimta hér með þátttöku ykkar. Hvernig komið þið í veg fyrir að hann renni frá ykkur? Hvað þurfið þið að tileinka ykkur til að koma í veg fyrir að þið grafið ykkur aftur í enn dýpri holu?
Ég ætla að mæla með fjórum mannkostum til viðbótar sem þið getið þróað til að varðveita sköpunarmátt ykkar. Ef þið þjálfið þessa eiginleika af einlægni opna þeir ykkur ómetanleg leyndarmál.
Fyrsti kosturinn er einfaldleiki.
Tákn Taóista fyrir einfaldleika er ómótaður klettur; það er möguleiki sem ber ekki í sér ákveðna skilgreiningu. Að losa sig við skilgreiningu er að slaka á, verja ekki neinar hugmyndir um sjálfa/n sig og vera ekki háð/ur óhagganlegum sjónarhornum. Þegar hugurinn er ekki þvingaður til gagnrýni og tilgerðar þagnar hann og flæðir með því sem er til staðar. Áráttukenndar þrár munu hverfa. Að sleppa réttlætingum og rökræðum færir ykkur aftur til augnabliksins. Spyrjið einfaldra spurninga. Veitið einföld svör. Deilið einfaldri ánægju. Njótið þess sem ekki fæst fyrir peninga. Fylgist með. Verið ómótaður klettur (mínus kletturinn).
Einfaldleiki er leyndarmál þess að vera.
Annar kosturinn er heilindi.
Losið hugann við þrælahald egósins. Þið eruð ekki efni, orka eða rými. Þið eruð handan allra skilgreininga, af hverju að vera þræll einhverrar þeirra? Gefið ykkur gjöf alheimssjónarmiðs. Viska mun birtast og innsæi stýra athöfnum ykkar sem spretta af kærleika og góðum ásetningi. Það er engin eftirsjá. Gerið það sem gagnlegt er. Hjálpið öðrum vegna þeirrar ánægju sem það veitir. Einbeitið ykkur að því að auðga veröldina í stað þess að sóa verðmætum hennar.
Heilindi eru leyndarmálið á bakvið hugarró
Þriðji kosturinn er þjónusta.
Losið hugann við þrælahald egósins. Þið eruð ekki efni, orka eða rými. Þið eruð handan allra skilgreininga, af hverju að vera þræll einhverrar þeirra? Gefið ykkur gjöf alheimssjónarmiðs. Viska mun birtast og innsæi stýra athöfnum ykkar sem spretta af kærleika og góðum ásetningi. Það er engin eftirsjá. Gerið það sem gagnlegt er. Hjálpið öðrum vegna þeirrar ánægju sem það veitir. Einbeitið ykkur að því að auðga veröldina í stað þess að sóa verðmætum hennar.
Þjónusta við aðra er leyndarmálið á bak við hamingju.
Fjórði kosturinn er samþykki.

Sumir hlutir í lífinu eru óhjákvæmilegir: Mistök, missir, áverkar, óréttlæti, tilfinningauppnám, skelfing, sársauki, yfirbugun og auðvitað dauði. Að streitast gegn því sem er óhjákvæmilegt lengir bara tilvist þess og skilur eftir dýpri sár. En hvernig samþykkið þið þjáningu? Svarið er að það þarf að finna eitthvað jákvætt við hana. Í fyrstu gæti það virst óhugsandi en ef þið nálgist upplifunina af hugrekki og notið Avatartækin þá er það mögulegt.
Til að finna eitthvað jákvætt við upplifun sem veitt er andspyrna, gætuð þið þurft að fyrirgefa einhverjum eða játa yfirsjónir eða sjá hlutina í víðara samhengi. Að breyta neikvæðri upplifun í eitthvað jákvætt hjálpar ykkur til að vaxa.
Samþykki er leyndarmálið sem bindur enda á þjáningu.
Saga Avatarnámsins
Af hverju leggur Avatarþjálfunin áherslu á lífslærdóm fram yfir orðalærdóm?
Almennt talað þá hefur lærdómur áhrif á okkur á einhvern hátt. Við verðum gáfaðri, fljótari, ánægðari eða færari. Lífslærdómur hefur líkamleg áhrif á okkur vegna fyrirhafnar og tilfinninga, vekur tilfinningaleg viðbrögð og svo, eftir að við vinnum úr þeim eða hugsum málið, hefur hann vitræn áhrif. Lífslærdómur er eitthvað sem við förum í gegnum og vinnum úr. Við munum hann vegna þess að hann er í samhengi við tilveru okkar. Við treystum á hann vegna þess að rætur hans liggja í eigin upplifun. Hann hefur áhrif á þær ákvarðanir sem við tökum síðar. Hann breytir afstöðu og hegðun. Orðalærdómur hefur aðallega áhrif á vitsmunina og nær venjulega ekki lengra. Hann hefur sjaldan nokkur áhrif líkamlega eða tilfinningalega. Hann verður ekki til vegna upplifana sem við höfum reynt. Orðalærdómur er eitthvað sem einhver annar áttaði sig á. Orðalærdómur gæti sagt okkur hvað væri rétt að gera en svo höldum við samt áfram að taka áráttukenndar, rangar ákvarðanir. Í verstu tilfellunum leiðir orðalærdómur til skammar og sjálfs-óbeitar fremur en til framfara. Til að forðast depurð og árangursleysi þarf kennsla í sjálfsefli að fara fram með upplifun frekar en á huglægum grunni. Hana þarf að skilja í samhengi við lífið fremur en í samhengi við viðhorfakerfi. Hana þarf að kenna sem færni fremur en sem afhjúpuð leyndarmál. Það er ólíklegt að þið getið breytt lífi ykkar bara með því að lesa og hlusta.

Áskrift að Avatarfréttum
Avatarfréttir er ókeypis netblað tileinkað Avatar og sköpun upplýstrar alheims-menningar. Í hverju blaði eru greinar eftir Harry Palmer, Avatarmeistara, árangurssögur og vitnisburðir frá námskeiðum, auk svæða þar sem Avatar-meistarar geta auglýst og kynnt námskeið. Þú getur lesið nýjasta tölublaðið hér.
 Bjóddu vini áskrift að Avatarstundum Ef þú vilt deila þessu ferðalagi með öðrum láttu vin vita.
|